ÍA >> Umf.Skipaskagi

 

 

 

 

 

Viltu gerast áskrifandi?

28. júlí 2010 21:09

GPO Akranes Natacion

GPO Akranes Natacion hópurinn, eins og við heitum hér á Benidorm bendir aðdáendum á að frettir og myndir er að finna á Benidorm síðunni okkar.

 
27. júlí 2010 20:19

Allt í góðu á Benidorm

Nú er fyrsta alvöru æfingadeginum lokið hér á Spáni. Allt gekk eins og í sögu, vatn í lauginni, sól á lofti, flestir ómeiddir og vel SADDIR. Dagurinn byrjaði 

meira...
 

 
12. júlí 2010 13:23

Styttist í æfingabúðir

Sundmenn Sundfélags Akraness hefja æfingar eftir stutt sumarfrí þann 27. júlí á Benidorm á Spáni. Vegna þessarar ferðar (sem hefst reyndar 26. júlí) verður foreldrafundur að Jaðarsbökkum kl. 20:00 þann 15. júlí þar sem farið verður yfir tilhögun ferðar.

 

Meðan beðið er eftir fundinum er tilvalið að skoða Benidorm-síðuna okkar

 
8. júlí 2010 13:15

A/B hópur ætlar að hjóla fyrir Hvalfjörð

Við ætlum að hjóla fyrir Hvalfjörð  miðvikudaginn 14. júlí ef veður verður hagstætt. Förum af stað kl 17:00 frá Jaðarsbökkum. Hjólum af stað sunnan megin við göngin.

Vegalengdin er ca. 75 km og tekur 5-7 klst

 

 

 

meira...
 

 
4. júlí 2010 14:11

Arta með Akranesmet í Noregi

Arta Haxhiajdini og Birgir Viktor Hannesson voru um helgina í Drammen í Noregi að keppa á Norðurlandamóti æskunnar með unglingalandsliði Íslands.

 

Krakkarnir syntu vel og bætti Arta sig í þremur af fjórum greinum sem hún synti og setti glæsilegt Akranesmet í 400m skriðsundi í morgun þegar hún synti á 4.42,91 mín sem er um 6 sek. bæting.

 

Íslendingum gekk vel á mótinu og var góður andi í liðinu. Það sem bar hæst var að Kolbeinn Hrafnkelsson úr SH vann til tveggja gullverðlauna. 

 
1. júlí 2010 21:06

Tveir Skagamenn keppa með unglingalandsliði Íslands í sundi um helgina

Um helgina fer fram Norðurlandameistaramót æskunnar í sundi í Drammen í Noregi.

 

Sundsamband Íslands sendir unglingalandslið skipað níu sundmönnum sem náð hafa lágmörkum.

 

Tveir Skagamenn eru í unglingalandsliðinu þau Arta Haxhiajdini 14 ára og Birgir Viktor Hannesson 16 ára. Ragnheiður Runólfsdóttir fer með liðinu sem þjálfari.

meira...
 

 
29. júní 2010 21:52

Akranesmet

Sundmenn frá Akranesi hafa verið duglegir við að bæta Akranesmet að undanförnu.

 

Elstu meðlimir Sundfélagsins hafa staðið í ströngu við keppni á undanförnum vikum. Í lok maí tóku þau þátt í Bikarkeppni SSÍ í Reykjanesbæ, viku síðar voru Akranesleikarnir haldnir á Akranesi, helgina þar á eftir var Smáþjóðamót-SH haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði þar sem Sundfélag Akraness átti 8 landsliðsmenn og um síðustu helgi var Aldursflokkameistaramót Íslands haldið í Ásvallalaug.

meira...
 

 
27. júní 2010 23:17

AMÍ lokið

Á síðasta degi AMÍ nældu sundmenn SA í nokkra meistaratitla.

Sindri Freyr Ísleifsson og Arta Haxhiajdini sigruðu í 100 metra skriðsundi, Salome Jónsdóttir í 200 metra flugsundi, Birgir Viktor Hannesson í 400 metra fjórsundi, Inga Elín Cryer í 400 metra fjórsundi og Jón Þór Hallgrímsson í 100 metra baksundi á nýju Akranesmeti. Þá sigraði meyjasveitin 4x50 metra skriðsund en í sveitinni voru: Anna Eze, Birna Sjöfn, Yrsa Katrín og Júlía Björk.

 

Á lokahófi mótsins voru stigahæstu sundmennirnir heiðraðir og var Inga Elín Cryer stigahæst i flokki 17-18 ára.

 

Aðrir í verðlaunasætum í dag voru:

meira...
 

 
26. júní 2010 23:48

Skagamenn í þriðja sæti

25. júní 2010 22:11

Enn bætast við titlar á AMÍ

24. júní 2010 20:06

Glæsilegur fyrsti dagur á AMÍ

23. júní 2010 15:58

AMÍ 2010

18. júní 2010 22:55

Höfrungar og C í fyrramálið í Bjarnalaug

18. júní 2010 14:57

Höfrungar og C/B kl. 16:00 í Bjarnalaug

18. júní 2010 14:12

Allir hópar 7-9 í fyrramálið

15. júní 2010 12:04

Fararstjórar á AMÍ

14. júní 2010 13:29

Sundmenn frá Akranesi í landsliðsverkefni

7. júní 2010 14:12

Frí á sundæfingum í dag!

6. júní 2010 16:14

Akranesleikum lokið

5. júní 2010 21:41

Annar dagur Akranesleika að kveldi kominn

4. júní 2010 19:28

Fyrsta hluta Akranesleika lokið

4. júní 2010 11:58

Akranesleikar að hefjast

1. júní 2010 10:31

Sumarsund Sundfélags Akraness

30. maí 2010 22:56

Keppendalisti kominn á vefinn


eldri fréttir

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íþróttabandalag Akraness, Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum, Sími: 895-1278